Aðalsíða
Velkomin á Gistiheimilið Árný
Við erum staðsett á rólegum og þægilegum stað við Illugagötu 7, sem er aðeins 100 metrum frá sundlauginni og íþróttahúsinu. Miðbærinn og golfvöllurinn eru í 300 metra fjarlægð.
Við bjóðum upp rúm og svefnpokapláss fyrir 2 og allt að 6 manns í herbergi, með eða án morgunmats og eldunaraðstöðu. Í boði eru 11 mismunandi herbergi. Aðgangur er að baðherbergi / sturtu, eldhúsi og örbylgjuofni.
Öll herbergi hafa sjónvarp með 10-12 stöðvum og er einnig ókeypis þráðlaus internettenging til staðar.
Gistiheimilið Árný er þægilegur og vinalegur staður til að vera á meðan á dvöl ykkar stendur í Vestmannaeyjum.
Við erum aðeins:
300 metra fjarlægð frá miðbænum
300 metra fjarlægð frá golfvellinum
500 metra fjarlægð frá Herjólfi
1500 metra fjarlægð frá flugvellinum.
100 metra fjarlægð frá sundlauginni og íþróttahúsinu










